Skip to main content

Kennaranám

Langar þig í eitthvað magnaðra en allt sem þú hefur gert…

Kafa dýpra, vita meira.
Hafa einstaka þekkingu á huganum og skilja tilfinningarnar þínar og annara.
Finnur þú djúpa þrá til að hjálpa fólki að öðlast betra líf.
Langar þig að halda áfram að umbreyta þínu lífi.

Nám sem veitir þér kennsluréttindi í

“Lærðu að elska þig”  kennaranámið er fyrir alla þá sem ætla sér að lifa stórkostlegu lífi.
Þá sem vilja kenna þessi einstöku fræði og /eða  vilja bæta þessum fróðleik inní starfsumhverfið sitt.

Námið eflir þátttakendur persónulega,  það veitir dýpri og víðtækari skilning á hugarfari og tilfinningum og dregur fram leiðtogahæfni þína.

Námið er góð viðbót fyrir einstaklinga sem vinna með fólk á einn eða annan hátt eins og;
þerapistar, sjúkraþjálfarar, kennarar, þjálfarar og foreldrar svo eitthvað sé nefnt….

Þátttakendur verða mun meðvitaðri um eigin hæfileika, þekkingu, hæfni og getu,
öðlast óbilandi sjálfstraust til að láta markmið sín og drauma rætast.

Í þessu námi munt þú auka hæfni þína til að:

 

  • skilja sjálfa/n sig og þinn heilaga sannleika,
  • finna sálarköllun þína,
  • hlusta á hjartað og fara eftir því,
  • eiga í betri samskiptum,
  • skilja hegðun og framkomu fólks,
  • örva og hvetja fólk,
  • takast á við alla hluti,
  • kenna fólki að hafa sjálfstraust og standa með sér,
  • leiða fólk inná rétta braut,
  • hjálpa fólki að finna hæfileika sína og ástríðu,
  • útskýra fyrir fólki af hverju óþægilegir einstaklingar og atburðir verða á vegi okkar.
  • leiða fólk inn í ánægjulegra líf, sátt og meiri hamingju.

Námið nýtist þér til að byggja upp andlegan styrk og verða framúrskarandi í því sem þú ert að gera. Hvort sem þú sækist eftir að verða betri einstaklingur, foreldri, nemandi eða starfsmaður. Í þessu námi öðlast þú aukið sjálfstraust og öryggi til að vera þú sjálf/ur og finna þann magnaða mátt, visku og kraftinn sem þú býrð yfir.

Það eru einstök forréttindi að kenna þessi fræði og leiðbeina einstaklingum og hópum í þeirri heildrænu vegferð sem námskeiðið Lærðu að elska þig er.

Í þessari samvinnu milli leiðbeinanda og skjólstæðings myndast sterk tenging og báði aðilar vaxa og umbreytast á þessu undurfagra ferðalagi.

Ef þig dreymir um að sjá fólk blómsta, líða vel og njóta lífsins þá er námskeiðið Lærðu að elska þig  mjög öflug leið til að hjálpa fólki til öðlast hugrekki og finna kraftinn til að framkvæma, skilja lífið, takast á við áföll og aðra erfiðleika.

Ef þig langar að bæta þessum einstöku fræðum inní líf þitt og eiga þar með auvðeldara með að sigra þau verkefni sem lífið færir þér þá mun þetta nám færa þér vængina sem þú þarft til að finna þig svífa auðveldlega um í þessu yndislega lífi.

Hversu langt er þetta nám og hvernig og hvenær fer það fram ?

Námið tekur eitt ár og skiptist í hópatíma, einkatímar,
æfingu í að kenna, verkefnaskilum, bókalestri ofl.

Námið hefst þriðjudaginn 19. mai  2026

Því líkur í mai 2027
Það er hægt að taka námið á netinu.
Öll hópakennsla fer fram í beinni útsendingu eða á skjáspalli.

  • 10 kvöld  frá kl. 19:00 – 22:00
  • þrjár helgar frá kl. 9 – 17 alla dagana, þar af ein frá föstudegi – sunnudags
  • 4 hálfir  kennsludagar ( laugardagar frá kl. 9 – 13 )
  • 9 einkatímar 90 mín hver tími

Einkatímar skipulagðir í sameiningu meðfram því að kenna sjálf sjálfboðaliðum

  • Vinna með 3 sjálfboðaliða
    Hver sjálfboðaliði tekur  12 x 90 mínútna tíma.

 

Námið er  um það bil 300 klst., nám
mætingaskilda 180 klst + verkefnavinna um það bil 120 klst,
námið skiptist í :

  • hópatímar – 110 klst
  • vinna með sjálfboðaliða –  55 klst
  • einkatímar hjá faglærðum kennara –  15 klst
  • Verkefnavinna  um það bil – 120 klst –
    ATH. verkefnavinnan getur tekið lengri tíma.
ATH! Námið veitir einungis kennsluréttindi til að kenna námskeiðið
„Lærðu að elska þig“

Skilyrði fyrir þátttöku  :

  • viðkomandi hafi lokið námskeiðinu Lærðu að elska þig
  • ritgerð*

*Ritgerðin um „Af hverju hef ég áhuga og tel mig hafa ástæðu til að kenna
Lærðu að elska þig“
Ef þú ætlar ekki að nýta námið til að kenna Lærðu að elska þig taktu það fram í ritgerðinni.

ATH takmarkaður fjöldi tekin í námið hverju sinni.

Skráning er hafin hjá [email protected]
Verð á Kennara-náminu er  kr 648.000,-
Staðfestingagjald greiðist við bókun kr. 67.000,- er óendurkræft.

Óskir þú eftir nánari upplýsingum um námið hafðu samband við Ósk
[email protected]