Skip to main content

Kennararnir

Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir

Tónlistarkona, CVT söngkennari og þerapisti

þerapisti í Lærðu að elska þig eftir Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur.

Ég kynntist þerapíunni í lok 2014 þegar ég var á mjög svo dimmum stað í lífinu. Ég hafði ekki staðið með mér í mörg ár, búin að fara í gegnum erfiðleika með láti mömmu minnar og endalaust búin að vera að halda öllum góðum í öllum þeim samböndum sem ég var í. Með því að byrja smátt og smátt að vinna í mér lærði ég að setja mörk, vinna mig úr sorginni og hugsa jákvætt um mig og lífið á ný. Ég vann mig í gegnum erfiðleika í æskunni og stóð með mér í að vinna mig í gegnum skömm og andlegt ofbeldi. Í staðinn fyrir að berjast í gegnum alla daga með hnefunum gat ég vaknað og verið þakklát fyrir allt það góða í kringum mig, alla mína dásamlegu fjölskyldu, alla mína stórkostlegu vini og séð það jákvæða í lífinu í staðinn fyrir að rífa það niður.

Til þess að bóka tíma eða fá nánari upplýsingar um Aldísi Fjólu kíktu inná Facebook síðuna hennar : https://www.facebook.com/hinsannathu/

Anna Guðný Torfadóttir

Þerapisti og heilsumarkþjálfi

Ég hef mikla ástríðu fyrir bæði andlegri og líkamlegri heilsu. Ég lærði á mínum eigin líkama hversu máttug fæðan er og hversu mikilvægt það er fyrir andlegt & líkamlegt jafnvægi að borða holla fæðu. En þegar að ég var aðeins 17 ára gömul þurfti ég að gjörbreyta mataræðinu sökum fæðuóþols. Einnig var ég að glíma við mikinn kvíða og lífið tók stóra u-beygju þegar að ég fór í þerapíuna ,,Lærðu að elska þig''. Loksins þorði ég að standa með mér, áttaði mig á því hvað ég hef ástríðu fyrir, skildi hver ég er, þorði að vera ég sjálf og náði stjórn á kvíðanum. Þá sá ég svo skýrt að andlega heilsan spilar risastórt hlutverk í heilsu manns og vellíðan. Að mínu mati er hún í rauninni grunnurinn að öllu og mikilvægasta sem maður getur gert er að búa til fallegt nærandi samband við sjálfan sig. Þegar að maður hefur það þá gengur allt upp sama hvort það varðar mataræði, hreyfingu, samskipti, sambönd, uppeldi og/eða starfsframa.

Ég spurði elsku Ósk svo oft að því í tímunum hvar hún hafi lært þessa þerapíu því mig langaði svo mikið að kenna hana. Draumurinn rættist svo sannarlega og er ég svo þakklát fyrir að fá að vera þerapisti þerapíunar í dag. En ég hef verið að fá til mín skjólstæðinga í þerapíuna síðan árið 2016 og er þetta með því skemmtilegra sem ég geri. Ég tek á móti skjólstæðingum mínum í fallegri útsýnisíbúð í Kópavogi þar sem að ég legg mikið upp úr heimilislegri og kósý stemmingu í tímunum. En einnig hef ég verið með skjólstæðinga í gegnum myndsímtöl sem hentar vel þegar fólk býr ekki í höfuðborginni. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt bóka tíma þá er þér velkomið að senda mér línu á anna@heilsaogvellidan.com. Hér er einnig linkur á umsagnir frá mögnuðu skjólstæðingunum mínum; https://heilsaogvellidan.com/blomstradu
Ásamt þerapíunni er ég einnig með netnámskeiðið Endurnærðu þig (https://endurnaerdu-thig.teachery.co/) þar sem ég hjálpa fólk að hlúa að líkama & sál á heildrænan hátt.

Fyrir heilsufróðleik, hollar uppskriftir og hvatningu:

https://heilsaogvellidan.com/
https://www.instagram.com/heilsaogvellidan/
https://www.facebook.com/heilsavellidan/

Birgittu Hrönn

Þerapisti

Þessi síða mín er um það sem mig langar að kenna, þerapíuna“Lærðu að elska þig“ og reiki. Ég er reikimeistari og held námskeið og tek fólk í heilun. Ég kenni einnig þerapíuna “Lærðu að elska þig” sem er 12 einkatímar með þriggja vikna millibili þar sem fólk fær verkefni með sér heim. Ég kenni einnig hópum sjálfsstyrkingarnámskeið sem heitir “Ný sýn með mínum augum” og er 7 vikna hópanámskeið með verkefnum milli tíma. Ég hef mikinn áhuga á að hjálpa fólki að elska sig, heila sig og skilja um hvað allt þetta sýst. Dæmi: Mitt líf snýst um mig. Það sem ég segi um aðra er ég að segja um mig. Ef ég dæmi aðra þá er ég að dæma mig.
Ég trúi því að öll getum við heilað okkur sjálf. Við þurfum stundum hjálpina til að koma okkur af stað og stundum erum við þannig stemmd að við finnum ekki leiðina og þurfum hjálp til þess.
Til þess að bóka tíma eða fá nánari upplýsingar um Birgittu Hrönn kíktu inná Facebook síðuna hennar : https://www.facebook.com/liveinpeaceandlove/

Halla Ósk Heiðmarsdóttir

Þerapisti

Ég er þerapisti í þerapíunni lærðu að elska þig.
Mín dýpsta þrá er að hjálpa fólki að tengjast betur hjartanu, blómstra í lífinu og læra að elska sig skilyrðislaust.
Mín saga:
Ég hef frá því ég man eftir mér verið með kvíða og þunglyndi og því verið mjög leitandi í að finna leiðir til að tækla hugann og stjórna eigin líðan.
Sumarið 2015 fór ég á botninn andlega og ákvað eftir að hafa fylgst með Ósk í nokkur ár að heyra í henni og fara til hennar í þerapíuna „Lærðu að elska þig“ sem gjörbreytti öllu.
Með því að vinna verkefni þerapíunnar og hitta hana á þriggja vikna fresti í heilt ár fann ég meðvitundina og sjálfstraustið aukast auk þess að í fyrsta sinn var ég með meiri stjórn á minni líðan.
Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á æskunni, uppeldi og áhrifum sem æskuupplifun hefur á manneskjuna. Árið 2015 þegar ég varð sjálf móðir auk þess að fara í þerapíuna opnaðist fyrir margt úr minni æsku sem gjörbreytti skilningi mínum á sjálfri mér og minni líðan.

Til þess að bóka tíma eða fá nánari upplýsingar um Höllu Ósk kíktu inná Facebook síðuna hennar : https://www.facebook.com/hosklif/

Ingibjörg

þerapisti

Ég er kennaranemi í þerapíunni “Lærðu að elska þig” eftir Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur þerapista. Sjálf fòr ég fyrst í gegnum þerapíuna með yndislegum kennara og var það grunnur að mikilli sjálfsvinnu og sjálfskoðun. Ferlið í þerapíunni er 9-12 mánuðir og verkefnunum er raðað eftir þrepum og byggjast þau upp eftir hvert öðru og tekur um 3 vikur að vinna hvert verkefni. Að breyta vana og að byrja að fletta ofan af hugsanamynstrum sem hafa fest sig í sessi tekur sinn tíma og er alls ekki auðvelt. En verðlaunin standa ekki á sér

Til þess að bóka tíma eða fá nánari upplýsingar um Ingibjörgu kíktu inná Facebook síðuna hennar : https://www.facebook.com/Inn%C3%A1vi%C3%B0-L%C3%A6r%C3%B0u-a%C3%B0-elska-%C3%BEig-103092247900000/

Nína Margrét

Þerapisti

„Lærðu að elska þig, það fullkomnar lífð“ einstaklingsnám til að auka sjálfstraust, kærleika, vitundarvakning og betri samskipti. Kenni reiki og tek í meðferð. Þú skiptir máli.
Til þess að bóka tíma eða fá nánari upplýsingar um Nínu Mrgréti kíktu inná Facebook síðuna hennar : https://www.facebook.com/fullkomnadulifthitt/

Sólveig Ösp

þerapisti

Ég er kennari í þerapíunni „Lærðu að elska þig“ eftir höfundinn Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttir.

Það að kynnast þerapíunni opnaði alveg nýjan heim fyrir mér, í raun finnst mér ég hafa lent í lukkupottinum við það að uppgötva þessa sjálfs vinnu og þau verkfæri sem þerapían hefur uppá að bjóða.

Áður en ég hóf þessa vinnu fyrir sjálfa mig, þá hafði ég ávallt upplifað það og taldi þerapíuna „Lærðu að elska þig“ einungis vera fyrir þá sem væru alveg á “botninum” og ekki fyrir mig, því mér fannst ég vera alveg á fínum stað í lífinu þannig séð, þrátt fyrir að ég væri að eiga við smá kvíða, smá óöryggi og meðvirkni. Ég var í fínni vinnu, átti dásamlega fjölskyldu, góðan vinahóp og fór erlendis í sumarfrí reglulega og taldi mig stunda ágæta sjálfsrækt með því að mæta í ræktina, stunda yoga, hitta vinina og njóta útiverunnar eins og ég gat. Taldi mig í raun ekkert skorta þannig séð en fann samt innra með mér að mig vantaði eitthvað en ég vissi ekki alveg hvað það var.
Til þess að bóka tíma eða fá nánari upplýsingar um Sólveigu Ösp kíktu inná Facebook síðuna hennar : https://www.facebook.com/gledilegtlif/

Þuríður Gísladóttir

Þerapisti

viðskiptafræðingur og þerapisti í þerapíunni „Lærðu að elska þig“ eftir Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur. Ég er á besta aldri, fædd 1969 og hef margskonar reynslu í pokanum. Fór snemma að heiman, gifti mig ung, rak eigið fyrirtæki 24ára, átti 3 drengi þegar ég var 27 ára, skilin 30ára, fór í háskólanám einstæð móðir 34ára, gifti mig aftur 40ára, flutti á framandi slóðir í útlöndum 42ára, 47ára fluttum við aftur til Íslands og við tók íslensk lífsbarátta með þeim krúsindúllum sem þar finnast.

Í gegnum tíðina hef ég verið leitandi og oft verið mjög týnd í minni innri tilveru, ég var ekki nóg, hugmyndir mínar voru ekki nógu góðar, sjálfsmyndin var ekki góð. Ég var snillingur í að rífa mig niður tilfinningalega og umvefja mig fórnarlambs hugsunarhætti. Ég hef farið mínar eigin leiðir, með reglulegu millibili reynt að brjótast út úr fjötrum sem ég hef í raun ekki vitað hverjir voru, í starfi, einkalífi og leik.
Til þess að bóka tíma eða fá nánari upplýsingar um Þuríði
kíktu inná Facebook síðuna hennar : https://www.facebook.com/hlustaduahjartathitt/

Kristín Stefánsdóttir

Þerapisti

Ég útskrifaðist árið 2018 og hef kennt þerapíuna “Lærðu að elska þig síðan og hef mikla unun af því sem og fundið þörf til að læra meira.

Ég hef stundað sjálfsvinnu í allmörg ár og verið óþrjótandi að leita leiða til auka við andlegan þroska minn.
Árið 2014 kynntist ég Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur, þerapista og höfundi þerapíunnar 'Lærðu að elska þig' . Ég þurfti að byggja mig upp eftir áföll í lífinu, fór í þerapíuna og líf mitt tók miklum breytingum til hins betra. Sumarið 2017 fór ég til Bandaríkjanna á námskeið hjá Gary Zukav og Lindu Frances sem eru andlegir þjálfarar. Efnið var nátengt því sem Guðbjörg Ósk kennir og bætti ég þar enn við kunnáttu mína.
Einnig hef ég farið á námskeið tengd meðvirkni.
Nú er ég í námi hjá þjálfaranum Caroline Strawson. Ég mun útskrifast í lok árs 2021 sem Certified Narcissism Informed Coach (TM). Þetta er verndað starfsheiti og að baki því liggur umtalsverð þjálfun. Það þýðir að ég get aðstoðað fólk við að skilja hugtakið Narcissism, skaðann sem því tengist að vera í nánu sambandi við slíka einstaklinga og hvernig taugakerfi okkar bregst við. Af hverju fólk myndar tengsl við þá yfirhöfuð. Skilja að ástæðan á sér djúpar rætur. Hugtök eins og 'Traumabonding', 'Gaslighting' og 'Projecting' eru útskýrð og fólk aðstoðað við að koma þeim jákvæðu breytingum á líf sitt sem það óskar.
Til þess að bóka tíma eða fá nánari upplýsingar um Kristínu kíktu á Facebook síðuna: